Samvinna barnanna vegna – fundur 18. október

DalabyggðFréttir

Miðvikudaginn 18. október kl. 17:00 í efra holi Auðarskóla verður haldinn fundur um Samvinnu barnanna vegna fyrir foreldra í sveitarfélaginu.

Skiptir samvinna foreldra máli fyrir farsæld barna? Hvað get ég lagt af mörkum til að auka vellíðan barna í mínu nærsamfélagi?

Fundurinn er ætlaður foreldrum og forsjáraðilum barna í Dalabyggð en fræðslunefnd vill einnig bjóða aðra áhugasama aðila velkomna. Boðið verður upp á súpu og brauð.

Farsældarsáttmálinn verður einnig lagður fyrir.

Hlökkum til að sjá þig.

(fundurinn var áður auglýstur 10. okt en var frestað vegna veðurs)

 

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei