Sérstakur húsnæðisstuðningur vegna 15-17 ára

DalabyggðFréttir

Ungmenni 15-17 ára sem eru í framhaldsskólum eiga rétt á sérstökum húsnæðisstuðningi.

Stuðningurinn er ætlaður foreldrum/forsjáraðilum 15-17 ára ungmenna sem leigja herbergi á heimavist, á námsgörðum, eða leiguherbergi á almennum markaði og njóta ekki vegna aldurs réttar til húsnæðisbóta.

Umsóknir berist til skrifstofu Dalabyggðar eða á netfangið dalir@dalir.is.

Skila þarf inn útfylltu umsóknareyðublaði og senda með afrit af húsaleigusamningi og staðfestingu á skólavist á viðkomandi önn.

Samkvæmt reglum skal umsókn berast fyrir 15. þess mánaðar sem greitt er fyrir og ekki greitt aftur í tímann. Umsókn gildir fyrir hverja skólaönn.

Reglur um sérstakan húsnæðisstuðning og umsóknareyðublöð má finna hér:
– Reglur
– Eyðublað

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei