Hérna er horft fram að Laugum

Síðustu opnunardagar Byggðasafnsins

DalabyggðFréttir

Síðustu opnunardagar Byggðasafns Dalamanna í kjallaranum á Laugum verða föstudaginn 27. desember og sunnudaginn 29. desember kl. 13-17. Frítt verður inn á safnið, húslestur og heitt á könnunni. Þurfi að koma til breytinga á opnunartímum vegna veðurs verður það auglýst á heimasíðu Dalabyggðar. Á nýju ári verður síðan hafist handa við að pakka safnkostinum niður.

Skipulögð söfnun muna í Dölum fyrir væntanlegt Byggðasafn Dalamanna hófst sumarið 1968. Fyrsta sýning safnsins var í einu sýningaborði sumarið 1974 í tengslum við þjóðhátíð. Á Laugum voru fyrstu sýningar safnsins opnaðar sumardaginn fyrsta 1977. Sumardaginn fyrsta 1979 var safnið vígt af þáverandi forseta Íslands, Kristjáni Eldjárn.

Saga Byggðasafns Dalamanna verður ekki sögð án þess að geta Magnúsar Gestssonar (1909-2000) frá Ormsstöðum. Magnús var frumkvöðull að stofnun safnsins. Fór um Dalina sumarið 1968 og safnaði munum. Hann gekk frá húsnæði safnsins til sýningarhalds, smíðaði sýningarkassa, dyttaði að munum og setti upp sýningar. Magnús var safnvörður frá stofnun til 1998, þá 88 ára að aldri. Magnús var sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu 1985 fyrir störf sín í þágu Byggðasafns Dalamanna.

Í ár á safnið 40 ára vígsluafmæli og 51 eitt ár síðan söfnun muna hófst. Á þessum 40-50 árum hefur margt breyst í starfsemi safna, þar á meðal kröfur til húsnæðis. Heitavatnslagnir í lofti, leysinga- og rigningavatn hefur flætt inn á safnið, skortur á geymslum, vinnuaðstöðu og fleira hefur hamlað allri starfsemi og þróun. Tímabært er því að koma safnkostinum í öruggt skjól með von um að með hækkandi sól og hæfilegri bjartsýni fáist nýtt húsnæði til framtíðar.

Dalamenn, nágrannar og aðrir velunnarar safnsins eru velkomnir að Laugum þessa síðustu opnunardaga.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei