sjúkraþjálfari óskast í dalabyggð

Sjúkraþjálfari óskast í Dalabyggð!

DalabyggðFréttir

Sjúkraþjálfari óskast í Dalabyggð!

Dalabyggð leitar að sjúkraþjálfunarstöð eða sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfara sem hefur áhuga á að bjóða upp á reglubundna sjúkraþjálfun í Búðardal, 2–5 daga í viku.

Dalabyggð býður upp á vel búið meðferðarherbergi til leigu á hagstæðum kjörum í Íþróttamiðstöðinni í Búðardal. Þar er góð aðstaða og tækifæri fyrir áhugasama til að byggja upp eigin sjúkraþjálfunarþjónustu á svæðinu.

Boðið er upp á sveigjanlegan vinnutíma, aðgang að sundlaug og líkamsræktaraðstöðu án endurgjalds og búnað sem þegar er til staðar.

Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband til að kynna sér aðstöðuna og möguleikana nánar.

Nánari upplýsingar veitir Einar Björn Þorgrímsson, lýðheilsufulltrúi Dalabyggðar, í síma 866-0562 eða á netfangið einarbjorn@dalir.is.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • JáNei