Þeir leiðinlegu atburðir áttu sér stað að skemmd er komin í ærslabelginn í Búðardal.
Unnið verður að viðgerðum og tilkynnt þegar hann er kominn í lag.
Á meðan verður ekkert loft í belgnum og viljum við biðja íbúa um að gæta að því að ekki sé verið að fara á hann.
Ærslabelgir eiga að endast vel og lengi ef rétt er gengið um þá, því viljum við ítreka leiðbeiningar um umgengni:
- Bannað að vera í skóm þegar hoppað er á belgnum
- Ekki hoppa þegar blásarinn er ekki í gangi (hann er í gangi frá kl.09:00 – 22:00)
- Allir oddhvassir hlutir bannaðir á belgnum
Belgurinn er sameign okkar íbúa og því er það okkar að ganga rétt um hann og hafa afskipti af því ef umgengnisreglur eru ekki virtar.