Athugið vel hvert skal hringja til að panta tíma
English & Polska: Skimanir
Skimun fyrir brjóstakrabbameini verður 4.-5. september
Tímapantanir eru í síma 513 6700 milli kl. 8:30 og 12:00 alla virka daga. Einnig er hægt að senda tölvupóst á krabbameinsskimun@heilsugaeslan.is
Konur sem hafa fengið boðsbréf eru hvattar til að panta tíma í skimun fyrir brjóstakrabbameini
Núna er einkennalausum konum á aldrinum 40 – 69 ára boðin skimun fyrir brjóstakrabbameini á tveggja ára fresti og konum á aldrinum 70-74 ára á þriggja ára fresti.
Haustið 2023 verður skimað fyrir brjóstakrabbameini á þessum stöðum hjá Heilbrigðisstofnun Vesturlands (HVE) – með fyrirvara um breytingar:
Búðardalur – 4. og 5. september
Hólmavík – 6. september
Stykkishólmur – 25. til 26. september
Ólafsvík / Grundarfjörður – 2. til 4. október
Skimun fyrir leghálskrabbameini verður 5. september
Tímapantanir eru í síma 432 1450
Konur sem hafa fengið boðsbréf eru hvattar til að panta tíma í skimun fyrir leghálskrabbameini.
Vekjum athygli á að barnshafandi konur geta einnig óskað eftir viðtali vegna meðgöngu og fæðingar, hjá Helgu Hreiðarsdóttur ljósmóður sem annast sýnatökur vegna leghálskrabbameins.