Skólasetning grunnskóladeildar Auðarskóla

DalabyggðFréttir

Skólasetning grunnskóladeildar Auðarskóla fer fram þriðjudaginn 22. ágúst í Dalabúð og hefst athöfnin klukkan 10:00.

Klukkan 11:00 verður kynning fyrir nemendur yngsta stigs, klukkan 11:20 verður kynning fyrir nemendur á miðstigi og klukkan 11:40 fyrir nemendur elsta stigs.
Einnig minnum við á að í vetur samþykkti fræðslunefnd og síðar sveitastjórn að Auðarskóli myndi kaupa ritföng fyrir nemendur í 1. – 10. bekk skólaárið 2017-2018.

Með því er verið að bregðast við áskorun Velferðarvaktarinnar um að skólar greiði fyrir ritföng nemenda sem geymd eru í skólanum. Því verða ekki sendir út innkaupalistar fyrir næsta skólaár eins og undanfarin ár.

Skólinn mun kaupa penna, liti, stílabækur o.s.frv. fyrir nemendur. Undanskilin eru íþróttaföt, sundföt og reiknivélar fyrir nemendur á elsta stigi.

Auðarskóli

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei