Skólastjóri Auðarskóla – umsækjendur

DalabyggðFréttir

Fimm umsóknir bárust um stöðu skólastjóra Auðarskóla sem auglýst var um miðjan desember. Umsóknarfrestur var til 5. janúar 2016.
Umsækjendur eru eftirfarandi í stafrófsröð: Haraldur Reynisson, Hlöðver Ingi Gunnarsson, Jón Einar Haraldsson, Valgeir Jens Guðmundsson og Þorkell Cýrusson.
Hagvangur mun taka forviðtöl við umsækjendur í kring um næstu helgi. Byggðarráð samþykkti á fundi sínum 12. janúar að sveitarstjóri og fulltrúi kennara í fræðslunefnd taki þátt í viðtölum við umsækjendur ásamt byggðarráði.
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei