Slökkviliðsstjóri

DalabyggðFréttir

Væntanlegt byggðasamlag um brunavarnir Dala, Reykhóla og Stranda óskar eftir að ráða slökkviliðsstjóra. Tilgangur byggðasamlagsins er að að fara með skipulag, yfirstjórn, þjálfun vegna slökkviliða og eldvarnareftirlits á starfssvæðinu.

Starfssvæðið er Árneshreppur, Dalabyggð, Kaldrananeshreppur, Reykhólahreppur og Strandabyggð. Íbúar á starfssvæðinu eru 1545.

Starfssvið

Yfirumsjón og ábyrgð á rekstri og stjórnun slökkviliðsins

Ábyrgð á faglegri starfsemi slökkviliðsins

Úttektir, eldvarnareftirlit og stjórnun aðgerða

Stefnumótun og áætlanagerð

Samskipti við hagsmunaaðila

Menntunar- og hæfniskröfur

Umsækjandi skal hafa löggildingu sem slökkviliðsmaður skv. 17. gr. laga nr. 75/2000 og/eða hafa starfað að lágmarki í eitt ár í slökkviliði sem löggiltur slökkviliðsmaður eða hafa háskólamenntun með sérmenntun í brunamálum

Reynsla og/eða haldgóð þekking á stjórnun slökkviliðs æskileg

Leiðtogahæfni

Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð

Góð almenn tölvukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti

Þjónustulund, jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum

Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson, thorir@hagvangur.is

Laun og starfskjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Konur jafnt sem karlar eru hvattar til að sækja um.

Umsóknarfrestur er til og með 21. janúar 2019.

Umsóknir ásamt ítarlegri ferilskrá og kynningarbréfi óskast fylltar út á www.hagvangur.is

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei