Söfnun á rúlluplasti

DalabyggðFréttir

Bændur í Dalabyggð eru minntir á söfnun á rúlluplasti mánudaginn 29. apríl og þriðjudaginn 30. apríl.
Plastið skal haft á aðgengilegum stað og snyrtilega frágengið fyrir sorpverktaka. Baggabönd og net skal setja sér í glæra plastpoka.
Óheimilt er að setja rúlluplast og net í sorpgáma á grenndarstöðvum sveitarfélagsins. Opin brennsla úrgangs er óheimil þ.m.t. rúlluplasts skv. lögum nr. 55/2003, um meðhöndlun úrgangs og reglugerð nr. 737/2003.
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei