Söfnun sjúkraflutningaaðila

DalabyggðFréttir

Sjúkraflutningsmenn í Búðardal hafa nú hafið söfnun fyrir sjálfvirku hjartahnoðtæki til að hafa í sjúkrabíl í Búðardal.
Starfsmenn sjúkraflutninga Heilbrigðisstofnunar Vesturlands á Akranesi hafa staðið fyrir sambærilegri söfnun undanfarnar vikur með góðum árangri.
Tæki af þessari gerð hefur hlotið nafnið Lúkas, en þar er verið að vísa í að með notkun þess jafngildir það viðbótarmanni við endurlífgun. Tækið sér algjörlega um hjartahnoð án þess að þreytast eða vera fyrir öðrum við endurlífgunina. Það kæmi því í mjög góðar þarfir hér á okkar svæði þar sem flutningsleiðir eru langar. Þá verður einnig hægt að nýta það á heilsugæslu ef hjartastopp verður þar.

Sjúkraflutningsmenn í Búðardal munu nú leita til fyrirtækja, stofnana, félaga og einstaklinga með ósk um styrki til kaupa á hjartahnoðtæki og vonast eftir góðum undirtektum. Tækið kostar um tvær og hálfa milljón króna.
Lúkas er kominn í sjúkrabíla á þremur stöðum á landinu; höfuðborgarsvæðinu, Selfossi og Suðurnesjum. Á öllum þessum stöðum hafa fyrirtæki, félög og einstaklingar lagt fram fé til kaupanna.
Reikningsnúmer söfnunarinnar er 0312-13-110023 og kennitalan 530586-2359.
Sjúkraflutningamenn í Búðardal
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei