Sögurölt í Kumbaravog

DalabyggðFréttir

Miðvikudaginn 11. júlí kl. 19 verður þriðja sögurölt Byggðasafns Dalamanna og Sauðfjárseturs á Ströndum í sumar.

Upphafsstaður er við Klofning. Farið verður upp á Klofning að hringsjá sem þar er og notið útsýnisins. Spjallað verður m.a. um búsetu, strauma, siglingaleiðir og annað er kemur upp í hugann varðandi eyjarnar fyrir mynni Hvammsfjarðar.

Þá verður rölt niður í Kumbaravog í landi Mela. Munnmæli eru um verslun Íra þar á fimmtándu öld. Kaupfélag Skarðsstrendinga hafði þar í upphafi aðsetur sitt í upphafi 20. aldar. Þar er og húsmennskubýlið Grænanes. Síðan má ekki gleyma fuglalífi, útsýni og ægifögru sólarlagi þegar þannig stendur á.

Misgóðir malarvegir eru fyrir strandir (Skarðsströnd og Fellsströnd), en hringurinn í allt er um 90 km langur. Fyrir þá sem ekki þekkja til, þá eru menn komnir að Klofningi þegar keyrt er gegnum klofna kletta. Röltið ætti ekki að vera lengra en 2 km með öllum útúrdúrum, upp og niður, niður og upp.

Með sögum, spjalli og rölti tekur þetta allt að tveimur tímum, en svo er líka hægt að láta sér Klofninginn nægja og halda áfram ferð fyrir strandir.

Er söguröltið einnig hluti af dagskrá evrópska menningararfsársins 2018, þar sem íslenska þemað er strandmenning.

Árið 2018 er tileinkað menningararfi Evrópu. Markmið Menningararfsár Evrópu er að vekja athygli á og fagna fjölbreyttum menningararfi Evrópu, sem stendur traustum fótum í byggingarlist, fornleifum og fornum ritum en er þó í senn bráðlifandi í dag allt umhverfis okkur. Með því að gera menningararfi hátt undir höfði á árinu verður lögð áherslu á hvernig menningararfurinn byggir upp sterkari samfélög, skapar störf og hagsæld, er mikilvægur fyrir samskipti okkar við aðra hluta heimsins og hvað hægt er að gera til að vernda menningararf okkar.

Minjastofnun Íslands er í forsvari vegna skipulagningar Menningararfsárs Evrópu 2018 hér á landi. Ákveðið hefur verið að hafa „strandmenningu“ sem þema ársins á Íslandi. Undir strandmenningu fellur t.d. handverk, fornleifar, hús og mannvirki, gripir, bátar, sögur og ótal margt fleira.

Byggðasafn Dalamanna og Héraðsskjalasafn Dalasýslu taka þátt í dagskrá Evrópska menningararfsársins árið 2018. Dalirnir eru ekki beint þekktir fyrir hefðbundna sjósókn, en þeim mun meira er um nýtingu sjávarhlunninda og eyjabúskap.

Byggðasafn Dalamanna og Héraðsskjalasafn Dalasýslu munu taka þátt í dagskránni með þrennum hætti. Í fyrsta lagi með fyrirlestrum um ýmislegt sem tengist fjöru- og sjávarnytjum, lífríki og mannlífi meðfram ströndum og í eyjum hér í Dölum. Í öðru lagi verða nokkrar kvöldgöngur sumarsins tengdar hlunnindanýtingu, náttúru og menningarminjum meðfram strandlengju sveitarfélagsins. Í þriðja lagi að vekja athygli gesta Byggðasafns Dalamanna á þeim hluta safnsins sem fjallar um eyjabúskap og hlunnindanýtingu.

 Sögurölt í Kumbaravog – fb

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei