Sögurölt: Tröllaskoðunarferð á Ströndum

DalabyggðFréttir

Söguröltið á Ströndum og í Dölum heldur áfram og þriðjudaginn 17. júlí kl. 19:30 verður farið í tröllaskoðunarferð í Kollafirði á Ströndum.

 

Lagt er af stað frá veginum, stoppað er innan við túnið á Kollafjarðarnesi. Þaðan verður gengið eftir gömlum vegslóða niður í Drangavík og heilsað upp á tröllin sem þar urðu að steini laust eftir landnám. Sagðar verða margvíslegar tröllasögur um Kollfirðinga fyrr og nú – ástir þeirra og örlög – auk þess sem álög og örnefni koma við sögu.

 

Þau sem vilja geta snúið við hjá Forvaðanum sem er þarna rétt í grenndinni, en þau sem eru léttari á fæti ganga inn Kollafjörðinn að eyðibýlinu Hlíð eftir gamla veginum í fjöruborðinu.

Jón Jónsson þjóðfræðingur á Kirkjubóli verður leiðsögumaður í göngunni. Söguröltin eru haldin í samvinnu Strandamanna og Dalamanna, það eru Byggðasafn Dalamanna – Héraðsskjalasafn Dalasýslu, Sauðfjársetur á Ströndum og Náttúrubarnaskólinn sem standa fyrir þeim í samvinnu við ýmsa aðila.

 

Kvöldkaffi verður á boðstólum á Sauðfjársetrinu í Sævangi að göngu lokinni.

 

Tröllaskoðunarferð á Ströndum – fb

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei