Sögurölt um Gautsdal

DalabyggðFréttir

Byggðasafn Dalamanna og Sauðfjársetur á Ströndum munu halda áfram samstarfi sínu frá fyrra ári um sögurölt í sumar.  Á fjórða hundraðið mættu í rölt í fyrra, oft í roki og rigningu.

 

Fyrsta sögurölt sumarsins verður þó hvorki í Dölum né Ströndum, heldur í Gautsdal í Geiradal miðvikudaginn 19. júní 2019 í samstarfi við Kalla og Lóu bændur á Kambi. Lagt verður af stað frá hlaðinu í Gautsdal stundvíslega kl. 19:30.

 

Skoðaðar verða tóftir af bænhúsi, leifar af gamalli heimarafstöð (túrbínan er varðveitt og til sýnis á Byggðasafni Dalamanna), forn skilarétt Geirdælinga, Réttarfoss í Gautsdalsá og annað sem á vegi okkar verður.

 

Dalamenn, Strandamenn, íbúar Reykhólahrepps og aðrir gestir eru velkomnir í rölt með okkur til að hreyfa sig hæfilega, hlusta á sögur og ekki síst til að hitta mann og annan úr þessum þremur héruðum.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei