Sögurölt um Mjósyndi

DalabyggðFréttir

Í fimmta sögurölti sumarsins verður gengið um Mjósyndi á Svínadal. Röltið er miðvikudaginn 29. júlí kl. 19:30 og hefst á bílastæði við Hrafnagil, sunnan við Mjósyndi.

Við Mjósyndi eru þrjú gil, rétt, útsýni og fleira. Ekki er um langa vegalengd að ræða og megnið af henni þægileg. Auðvelt er að sleppa þeim hluta sem er grýttari.

Sögurölt er samstarfsverkefni Byggðasafns Dalamanna og Sauðfjárseturs á Ströndum. Strandamenn, Dalamenn og aðrir áhugasamir gestir eru velkomnir.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei