Starfsleyfi fyrir urðunarstað

DalabyggðFréttir

Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir urðunarstað Dalabyggðar við Laxárdalsveg, Dalabyggð. Samkvæmt tillögunni verður heimilt að taka á móti og urða allt að 500 tonn af óvirkum úrgangi á ári.
Samkvæmt starfsleyfistillögunni verður gildistími starfsleyfis til næstu 12 ára. Tillagan, ásamt starfsleyfisumsókn og fylgigögnum, mun liggja frammi til kynningar í afgreiðslu stjórnsýsluhúss Dalabyggðar, Miðbraut 11, Búðardal, til 3. september 2015. Starfsleyfistillögu og önnur gögn má einnig nálgast á heimasíðu Umhverfisstofnunar.
Öllum er frjálst að gera athugasemdir við starfsleyfistillöguna en þær skulu vera skriflegar, undirritaðar með nafni og heimilisfangi og sendar Umhverfisstofnun. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 3. september 2015.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei