Sumarbingó Héraðsbókasafns Dalasýslu 2023 fyrir 5-12 ára

DalabyggðFréttir

Vegna frábærra undirtekta verður sumarbingó Héraðsbókasafns Dalasýslu endurtekið sumarið 2023. Bingóið er lestrarátak Dalabyggðar yfir sumartímann fyrir börn á aldrinum 5-12 ára.

Markmið með lestrarátaki yfir sumartímann er að hvert barn lesi í sumar, viðhaldi leshraða, lesskilningi og njóti lestursins. Lestur ýtir undir betri og fjölbreyttari orðaforða, styður við þroska barna og eykur þekkingu þeirra á svo margan hátt. Skólar og bókasöfn standa reglulega fyrir lestrarátaki en yfir sumartímann er hætt við að lestur detti niður eða gleymist í fríi og ferðalögum.

Því ætlar sveitarfélagið Dalabyggð að leggi sitt af mörkum með lestrarátaki í samstarfi við Héraðsbókasafn Dalasýslu sumarið 2023, annað árið í röð.

Um er að ræða bókabingó í þremur aldursflokkum, þ.e. 5-7 ára, 8-9 ára og 10-12 ára.
Á hverju spjaldi eru nokkrir reitir, hver reitur lýsir aðstæðum eða athöfn sem skal framkvæma á meðan lestri stendur. Þegar viðkomandi reit er lokið er merkt við hann.
Aftan á hverju spjaldi er beðið um tímabil sem bók er lesin á, titil bókar og nafn höfundar og hve margar blaðsíður bókin er.

Hægt er að sækja bingóspjöld á bókasafnið frá og með fimmtudeginum 1. júní og bingóið stendur yfir sumarið. Þann 22. ágúst nk. skila börnin inn bingóspjaldinu sínu á Héraðsbókasafn Dalasýslu, milli kl.13:30-17:00 og í september verður svo uppskeruhátíð þar sem þátttakendur fá að launum glaðning ásamt viðurkenningarskjali fyrir að hafa lokið við bingóið.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei