Sundlaugin lokuð vegna viðgerða í búningsklefum

DalabyggðFréttir

Sundlaugin í Íþróttamiðstöðinni í Búðardal verður lokuð frá miðvikudegi til og með sunnudeginum nk. (26.-30. ágúst) vegna viðgerða í búningsklefum.

Um er að ræða nauðsynlegar viðgerðir á gólffleti í klefum. Verða klefarnir tilbúnir til notkunar á mánudagsmorgun svo íbúar geta byrjað nýja viku á sundferð.

Opið er fyrir aðra þjónustu (ræktarsal og íþróttasal).

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda og þökkum fyrir skilninginn.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei