Svanni auglýsir eftir umsóknum um lán

DalabyggðFréttir

Svanni-lánatryggingasjóður kvenna auglýsir eftir umsóknum um lán úr sjóðnum en sjóðurinn er í eigu Reykjavíkurborgar, forsætisráðuneytisisins og háskóla- iðnaðar og nýsköpunarráðuneytisins.

Starfandi fyrirtæki sem eru í eigu kvenna a.m.k. 51% geta sótt um lán vegna verkefna innan fyrirtækis sem byggja á einhverju leiti á nýsköpun og/eða að verkefnið leiði til atvinnusköpunar og verðmætaaukningar.

Ekki er veitt lán fyrir óhóflegum launakostnaði eða vinnu eigenda við vöruþróun, sölu og markaðsstarf og að jafnaði er ekki veitt lán fyrir reglubundnum rekstarkostnaði.

Til greina kemur að veita lán fyrir tækjum sem eru nauðsynleg rekstrinum og/eða verkefninu en þá með veði í umræddum tækjum. Lánað er fyrir kostnaðarverði tækjanna að því gefnu að notkun á þeim leiði til atvinnusköpunar og verðmætaaukningar.

Stjórn og banki leggja mat á umsókn og viðskiptáætlun en sjóðurinn er í samstarfi við Landsbankann er veitir lánin.

Mikilvægt er að umsókn fylgi ítarleg viðskiptaáætlun ásamt fjárhags- og framkvæmdaráætlun, fjármögnunar og endurgreiðsluáætlun ásamt staðfestingu á eignarhaldi.

Skoða má lánareglur sjóðsins nánar hér

Umsóknarfrestur er til og með 15.september og er sótt um rafrænt á heimasíðu sjóðsins.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei