Sveitarstjóri

DalabyggðFréttir

Dalabyggð auglýsir lausa til umsóknar stöðu sveitarstjóra.
Dalabyggð er öflugt landbúnaðarhérað með um 700 íbúa. Þéttbýliskjarni sveitarfélagsins er Búðardalur og er þar alla almenna þjónustu að finna. Árið 2009 voru tveir grunnskólar, leikskólinn og tónlistarskólinn sameinaðar í eina stofnun, Auðarskóla sem nú hefur lokið sínu fyrsta starfsári en er enn í mótun. Nánari upplýsingar um sveitarfélagið er að finna á heimasíðunni www.dalir.is.
Nýkjörin sveitarstjórn var kosin í óbundinni kosningu (persónukjöri) og leggur upp með að starfa sem ein heild. Leitað er eftir öflugum og áhugasömum einstaklingi til að takast á við krefjandi verkefni. Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Starfsvið sveitarstjóra:
Daglegur rekstur sveitarfélagsins og ábyrgð á framkvæmd ákvarðana sveitarstjórnar
Yfirumsjón með skipulagi og virkni stjórnsýslu sveitarfélagsins og starfsmannamálum
Náið samstarf við sveitarstjórn, undirbúningur og upplýsingagjöf á fundum sveitarstjórnar og byggðarráðs
Sveitarstjóri gætir hagsmuna sveitarfélagsins út á við og annast samskipti við stofnanir, samtök, fyrirtæki og íbúa.
Stefnumarkandi vinna í atvinnumálum
Helstu kostir sveitarstjóra:
Leiðtogahæfni, frumkvæði og hæfni í mannlegum samskiptum
Áhugi og reynsla af bókhaldi, stjórnun og rekstri
Reynsla af störfum á sveitarstjórnarstigi er æskileg
Áhugi á uppbyggingu samfélagsins, sem og markaðs- og kynningarmálum
Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
Háskólamenntun sem nýtist í starfi er kostur en ekki skilyrði
Nánari upplýsingar:
Katrín S. Óladóttir, katrin@hagvangur.is
Brynhildur Halldórsdóttir, brynhildur@hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og með 30. júní 2010
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei