Sveitarstjórn Dalabyggðar hefur ákveðið að hækkanir á almennum gjaldskrám sveitarfélagsins fyrir árið 2027 verði að hámarki 2,5%.
Við ákvörðunina var horft til þeirrar efnahagslegu stöðu sem heimili og fyrirtæki búa við um þessar mundir, auk þess sem lögð var áhersla á að tryggja áfram traustan rekstur sveitarfélagsins og góða þjónustu við íbúa.
Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga samþykkti hinn 25. september ályktun um að halda hækkunum almennra gjaldskráa innan 2,5% á næsta ári. Markmiðið er að styðja við lækkun verðbólgu og vaxta og skapa skilyrði fyrir því að kjarasamningar haldi.
Með ákvörðuninni vill sveitarstjórn leggja sitt af mörkum til að stuðla að stöðugleika í efnahagslífinu og halda álögum á íbúa og fyrirtæki í lágmarki. Mikilvægt er að sveitarfélög og ríkisvaldið sýni ábyrgð í rekstri og taki virkan þátt í að skapa forsendur fyrir hóflegri verðþróun og auknum stöðugleika í samfélaginu.
