Sveitarstjórnarkosningar

DalabyggðFréttir

Sveitarstjórnarkosningar fara fram 31. maí næstkomandi. Upplýsingar um flest er lýtur að þeim er að finna á kosningavef innanríkisráðuneytisins.

Kjörskrá

Á kjörskrá skal taka alla íslenska ríkisborgara sem náð hafa 18 ára aldri á kjördag, 31. maí 2014, og sem skráðir eru með lögheimili í viðkomandi sveitarfélagi þremur vikum fyrir kjördag, 10. maí 2014. Óheimilt er því að breyta kjörskrá ef tilkynning um nýtt lögheimili hefur ekki borist Þjóðskrá Íslands fyrir þann tíma.

Utankjörfundaatkvæðagreiðsla

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar vegna sveitarstjórnarkosninga 31. maí 2014 er hafin. Kjósanda er heimilt að greiða atkvæði utan kjörfundar til kjördags. Innanlands er hægt að kjósa hjá öllum sýslumönnum á landinu, á aðalskrifstofum eða í útibúum þeirra.
Hjá Sýslumanninum í Búðardal fer atkvæðagreiðslan fram á skrifstofu sýslumanns, Miðbraut 11, frá kl. 13:00 til 15:30 alla virka daga til kjördags.
Hægt er að kjósa á öðrum tíma samkvæmt nánara samkomulagi við viðkomandi kjörstjóra.

Framboðsfrestur

Framboðsfrestur vegna sveitarstjórnarkosninga 31. maí rennur út kl. 12 á hádegi laugardaginn 10. maí 2014.
Ef aðeins einn framboðslisti berst skal yfirkjörstjórn framlengja framboðsfrest um tvo sólarhringa. Komi ekki fram nýr framboðslisti áður en þeim fresti lýkur verður framkominn framboðslisti sjálfkjörinn ef hann uppfyllir að öllu leyti skilyrði laganna.
Komi enginn framboðslisti fram verða óhlutbundnar kosningar (persónukjör). Allir kjósendur eru þá í kjöri nema þeir sem löglega eru undanþegnir skyldu til að taka kjöri og hafa fyrir fram skorast undan því.

Kosningavefur innanríkisráðuneytisins

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei