Sveitarstjórnarkosningar 26. maí 2018

DalabyggðFréttir

Kjörfundur vegna sveitarstjórnarkosninga í Dalabyggð verður haldinn laugardaginn 26. maí 2018 kl. 10-22 í félagsheimilinu Dalabúð í Búðardal. Kjósendum ber að framvísa persónuskilríkum á kjörstað.

Allir kjósendur í Dalabyggð eru í kjöri, nema þeir sem löglega eru undanþegnir skyldu til að taka kjöri og hafa fyrir fram skorast undan því. Samkvæmt þessu hafa Halla Sigríður Steinólfsdóttir Ytri-Fagradal, Ingveldur Guðmundsdóttir Stórholti og Jóhannes Haukur Hauksson Brekkuhvammi 1 skorast undan að taka kjöri.

Kjörskrá liggur frammi á skrifstofu Dalabyggðar.

Kjörstjórn

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei