Þorrablót á Borðeyri

DalabyggðFréttir

Þorrablót ungmennafélagsins Hörpu og kvenfélagsins Iðunnar verður haldið laugardaginn 23. febrúar 2013 í skólahúsinu á Borðeyri. Húsið opnar kl. 20, en blótið hefst kl. 20:30.
Gæðakokkar í Borgarnesi reiða fram þorramatinn. Einar Georg flytur annál ársins. Einnig munu fleiri stíga á stokk með söng og glensi. Hljómsveitina Kopar mun síðan spila fyrir dansi.

Pantanir eru hjá í símum 451 0090 (Kristín G) og 451 1104 (Kristín) fyrir miðvikudagskvöldið 20. febrúar. Miðaverð er 6.500 kr en 3.000 kr eingöngu á ballið. Posi á staðnum.
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei