Hundahald í Búðardal

DalabyggðFréttir

Af gefnu tilefni er minnt á að hundahald í Búðardal sætir nokkrum takmörkunum samanber samþykkt um hundahald í Dalabyggð.
Takmarkanirnar eru m.a. eftirfarandi
· Eiganda er skylt að skrá hund sinn á hreppsskrifstofu.
· Eiganda er skylt að kaupa ábyrgðartryggingu hjá viðurkenndu tryggingarfélagi.
· Óheimilt er með öllu að láta hunda ganga lausa, en heimilt er að hafa þá í taumi úti við, í fylgd með manni, sem hefur fullt vald yfir þeim.
· Hundaeigendum er skylt að sjá svo um, að hundar raski ekki ró manna eða verði mönnum til óþæginda. Skylt er leyfishafa að fjarlægja saur eftir hundinn.
· Hundaeigendum er skylt að láta hreinsa hunda sína einu sinni á ári.
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei