Tónlist og ljóð á Laugum í Sælingsdal

DalabyggðFréttir

Þriðjudagskvöldið 10. júlí kl. 20:30 verða tónleikar og ljóðaupplestur á Hótel Eddu í Sælingsdal.

Íslenskt/þýskt tríó spilar latíntónlist og jazz, það skipa kontrabassaleikarinn og heimamaðurinn Tómas R. Einarsson, gítarleikarinn Ómar Guðjónsson og trommuleikarinn Tommy Baldu.

Skáldið Kristín Svava Tómasdóttir les úr síðustu ljóðabók sinni, Stormviðvörun (2015), en hún kom út í enskri þýðingu í Bandaríkjunum fyrr á þessu ári og hefur hlotið þar góða dóma.

Viðburðurinn hefst kl. 20.30 og er aðgangur ókeypis.

 

Tónlist og ljóð á Laugum – fb

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei