Trjágróður við lóðamörk

DalabyggðFréttir

Trjágróður sem vex út fyrir lóðamörk getur skapað óþægindi og jafnvel hættu fyrir vegfarendur.
Húseigendur skulu gæta þess að gróður haldist innan lóðamarka og valdi ekki truflun á umferð gangandi, hjólandi og akandi vegfarenda.

Þegar trjágróður vex út yfir lóðamörk er sveitarfélaginu heimilt að fjarlægja gróður við götur, gangstíga eða opin svæði sem veldur truflunum eða óprýði, á kostnað lóðarhafa samkvæmt byggingarreglugerð nr. 112/2010, gr. 7.2.2.

Sveitarfélagið skorar á húseigendur/lóðarhafa að bregðast við hið fyrsta og klippa og snyrta hjá sér svo allir komist ferða sinna án hindrana. Verði það ekki gert mun sveitarfélagið, að undangenginni aðvörun, klippa þar sem nauðsynlegt er og senda lóðarhafa reikning fyrir framkvæmdinni.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei