Dagur íslenskrar tungu er haldinn hátíðlegur á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar 16. nóvember ár hvert.
Í tilefni dagsins er örsýning um tungutak Steinólfs Lárussonar (1928-2012) bónda í Ytri-Fagradal á Skarðsströnd. Tilgangur sýningarinnar er að minna okkur á að það má og á að leika sér að orðum og kynnast þannig skúmaskotum og fjölbreytileika íslenskunnar. Óhætt er að segja að Steinólfur í Fagradal hafi verið óragur við það. Hann endurnýtti orð og bjó til ný eftir eigin þörfum og sérvisku. Blandaði saman gömlu og nýju og kannaði þannig hvar þolmörkin eru.
Héraðsskjalasafn Dalasýslu og Byggðasafn Dalasýslu standa fyrir sýningunni með dyggri aðstoð Höllu Sigríðar Hrefnu Steinólfsdóttur í Ytri-Fagradal. Ljósmyndina tók Lárus Magnússon í Tjaldanesi.
Sýningin Tungutak Steinólfs í Ytri-Fagradal er á annarri hæð stjórnsýsluhúss, gegnt afgreiðslu sýslumanns og á leið að Héraðsskjalasafni Dalasýslu.
