Um ýmsar trissur aðrar

DalabyggðFréttir

Fjórir höfundar á ferð, lesa úr verkum sínum í fjósinu á Erpsstöðum, laugardaginn 10. nóvember kl 16.

Fjósaskáldin frómu eru Auður Ava Ólafsdóttir Ungfrú Ísland, Bergsveinn Birgisson Lifandilífslækur, Bjarni M Bjarnason, Læknishúsið og Sigurbjörg Þrastardóttir Hryggdýr.

Höfundarnir munu vera með eintök til sölu og árita ef vel viðrar. Gott að hafa lausan pening meðferðis, eða eitthvað af þessum nýmóðins greiðsluöppum í símanum.

Allir velkomnir og aðgangur er ókeypis. Klæðnaður er síðan eftir veðri og vindum.

Fjósaskáldin munu síðan halda för sinni áfram norður á bóginn og lesa upp sama dag kl. 20 á Restaurant Galdri á Hólmavík og á sunnudeginum 11. nóvember í Malarkaffi á Drangsnesi kl. 13.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei