Uppbyggingarsjóður Vesturlands

DalabyggðFréttir

Ráðgjafar á vegum Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi verða með kynningu á sjóðnum á næstu dögum þar sem hægt er að nálgast ýmsar upplýsingar um gerð umsókna, styrkhæfni verkefna o.fl. Viðvera verður í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal þriðjudaginn 15. janúar kl. 13-15.

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Uppbyggingarsjóð Vesturlands, en umsóknarfrestur rennur út sunnudaginn 20. janúar.

Að þessu sinni verða veittir styrkir til atvinnuþróunar, nýsköpunar í atvinnulífi, menningarmála og stofn- og rekstrarstyrkja menningarmála.

Uppbyggingasjóður Vesturlands

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei