Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna sveitarstjórnarkosninga hefst föstudaginn 17. apríl 2026 hjá sýslumönnum og sumum sveitarfélögum.
Kosið verður á afgreiðslu sýslumanns í stjórnsýsluhúsinu í Búðardal eftirtalda daga
- þriðjudaginn 21. apríl kl. 9:00-15:00.
- þriðjudaginn 28 apríl kl. 9:00-15:00.
- miðvikudaginn 29. apríl kl. 9:00-15:00
- fimmtudaginn 30. apríl kl. 9:00-15:00.
- þriðjudaginn 5. maí kl. 9:00-15:00.
Frá og með 6. maí fram að kosningum fer utankjörfundaratkvæðagreiðsla fram á skrifstofu Dalabyggðar alla virka daga á opnunartíma skrifstofunnar.
