Vefstefna fyrir vef Dalabyggðar, www.dalir.is, var samþykkt á fundi sveitarstjórnar 16. desember.Í stefnunni kemur m.a. fram að hlutverk vefsins „er fyrst og fremst til að veita íbúum sveitarfélagsins upplýsingar um stjórnsýslu og starfsemi sveitarfélagsins. Þá eru birtar fréttir af menningar- og samfélagstengdum viðburðum og öðru í héraðinu og nágrenni. Vefur Dalabyggðar er ekki hugsaður til að birta almennar fréttir úr héraðinu.“
Einnig kemur fram í vefstefnu að á „vef Dalabyggðar eru ekki birtar auglýsingar frá fyrirtækjum, félögum og einstaklingum vegna sölu á vöru og þjónustu. Undantekningar eru þegar það tengist beint menningartengdum viðburðum í héraðinu eða þegar ágóði fer til góðgerða- eða samfélagsmála.“
Ábendingum og leiðréttingum skal komið á framfæri við umsjónarmenn vefsins sem eru Sigfríð Andradóttir sigfrid@dalir.is og Valdís Einarsdóttir safnamal@dalir.is.