Sveitarfélagið Dalabyggð óskar eftir tilboðum í framkvæmdina:
IÐJUBRAUT OG LÆKJARHVAMMUR, JARÐVEGSSKIPTI OG LAGNIR
Verkin felast í jarðvegsskiptum og lagningu fráveitu- og vatnslagna í nýjum götum. Um er að ræða fyrri áfangi Iðjubrautar annars vegar og botnlanga vestur af Lækjarhvammi hins vegar. Hvor gata er aðskilið verkefni og hægt að gefa tilboð í bæði eða bara annað. Grafið verður fyrir götum og fyllt að stærstum hluta. Lagt verður tvöfalt fráveitukerfi og kalt vatn ásamt heimtaugum og niðurföllum.
Grófar magntölur:
Verkþáttur | Iðjubraut | Lækjarhvammur |
Gröftur | 3.800 m3 | 970 m3 |
Fylling | 2.400 m3 | 650 m3 |
Fráveitulagnir | 480 m | 300 m |
Vatnslagnir | 280 m | 80 m |
Verktími er frá 17. október til 17. desember 2022.
Áhugasamir geta kallað eftir gögnum með því að senda tölvupóst á netfangið kristjan@dalir.is. Gögnin verða afhent miðvikudaginn 28. september.
Tilboðum skal skilað á skrifstofu Dalabyggðar, Miðbraut 11, 370 Búðardal eða á kristjan@dalir.is fyrir kl. 13:00 þann 10. október nk. merkt: „Verðkönnun: Iðjubraut og Lækjarhvammur, jarðvegsskipti og lagnir“.
Tilboð verða opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska þegar fresturinn er liðinn.