Viðburðir á Hótel Eddu Laugum

DalabyggðFréttir

Næstu daga verða fernir tónleikar á Hótel Eddu Laugum; Tómas R. Einarsson og félagar, Hlynur Snær Theodórsson, Svavar Knútur og Jóhanna Ósk Valsdóttir og Bjartur Logi Guðnason.
Miðvikudaginn 5. júlí kl. 20:30 heldur Tómas R. Einarsson sína árlegu tónleika ásamt félögunum Ómari Guðjónssyni og hinum eina sanna Mugison.
Laugardaginn 8. júlí kl. 21:30 leiðir stórbóndinn og trúbadorinn Hlynur Snær Theodórsson úr Landeyjum brekkusöng við varðeld.
Sunnudaginn 9. júlí kl. 21:00 spilar og skemmtir hinn þjóðkunni Svavar Knútur af sinni alkunnu snilld.
Þriðjudaginn 11. júlí kl. 21:00 mun söngkonan Jóhanna Ósk Valsdóttir flytja ásamt eiginmanni sínum Bjarti Loga Guðnasyni íslensk þjóð- og sönglög, meðal annars við texta skálda úr Dölunum.
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei