Viðvera félagsráðgjafa

DalabyggðFréttir

Viðverutímar félagsráðgjafa í Dalabyggð verða óreglulegir í sumar. Næstu viðverutími verða fimmtudaginn 7. júní, miðvikudaginn 20. júní, miðvikudaginn 4. júlí, miðvikudaginn 18. júlí, miðvikudaginn 1. ágúst og miðvikudaginn 29. ágúst.

Föst viðvera félagsráðgjafa er í Stjórnsýsluhúsi Dalabyggðar, Miðbraut 11, Búðardal annan og fjórða miðvikudag hvers mánaðar frá kl 13 til 16. Tímapantanir eru í síma 433 7100 eða 898 9222 milli kl. 9 og 15 virka daga.

Auk þess er unnt að hafa samband við félagsþjónustuna símleiðis í síma 433 7100 á milli kl. 9 og 15 aðra virka daga, fá upplýsingar og ráð eða ákveða aðra stund og annan tíma, allt eftir aðstæðum.

Skrifstofa félagsmálastjóra Borgarbyggðar er á Borgarbraut 14 í Borgarnesi. Sími 433 7100 og fax 433 7101.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei