Viðvera menningarfulltrúa SSV

DalabyggðFréttir

Sigursteinn Sigurðsson, menningarfulltrúi SSV verður með viðveru í stjórnsýsluhúsi Dalabyggðar (Miðbraut 11, 370 Búðardal) þann 30. ágúst nk. kl.13-15.

Menningarfulltrúi vinnur að ýmsum samstarfsverkefnum og ráðgjöf varðandi menningarmál. Menningarfulltrúi starfar með uppbyggingarsjóðnum og veitir umsækjendum um menningarstyrki upplýsingar og ráðgjöf. Menningarfulltrúi vinnur einnig með fagráði menningarmála að tillögu um úthlutun menningarstyrkja úr Uppbyggingarsjóði Vesturlands og heldur utan um samskipti við styrkþega sjóðsins. Mörg mjög áhugaverð og fjölbreytt verkefni hafa hlotið menningarstyrki, auk þess sem veittir hafa verið styrkir til stofnana og fyrirtækja sem vinna að menningarmálum.

Næstu viðverudagar:
30. ágúst – frá kl.13 til 15
27. september – frá kl.13 til 15
25. október – frá kl.13 til 15
29. nóvember – frá kl.13 til 15

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei