Vinnuskóli Dalabyggðar

DalabyggðFréttir

Vinnuskóli Dalabyggðar verður starfræktur frá 6. júní til 31. júlí 2017 og er fyrir unglinga fædda árin 2001 – 2004.
Daglegur vinnutími verður kl. 8-12 og 13-15 fimm daga vikunnar fyrir elstu börnin, en fjóra daga fyrir hin yngri.
Umsóknareyðublöð eru á heimasíðunni og einnig á skrifstofu Dalabyggðar.
Sérstakar vinnureglur og viðmið um verkefni og verkfæri gilda um Vinnuskóla Dalabyggðar
Umsóknarfrestur er til og með 12. maí 2017.
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei