Skátar fagna sumri

DalabyggðFréttir

Á sumardaginn fyrsta mun Skátafélagið Stígandi taka á móti gestum í aðstöðu sinni í Dalabúð kl. 13:30 – 16:00.
Úti verður kveikt bál og ýmislegt fróðlegt og skemmtilegt í gangi fyrir gesti og skáta að prufa.
Inni verður hægt að hnýta hnúta, þæfa ull, fara í leiki, syngja skátasöngva, læra að súrra og sitthvað fleira.
Í matsalnum verður vöffluhlaðborð frá klukkan 14 og aðgangseyrir 500 krónur á manninn.
Um fjölskylduviðburð er að ræða, opinn öllum og gott tækifæri til að setja sig í spor skátans við leik og lærdóm.
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei