Vinnuskóli Dalabyggðar 2018

DalabyggðFréttir

Vinnuskóli Dalabyggðar verður starfræktur frá 11. júní til 31. júlí og er fyrir unglinga fædda árin 2002 – 2005.  Daglegur vinnutími verður kl. 8-12 og 13-15 fimm daga vikunnar fyrir elstu börnin, en fjóra daga fyrir hin yngri. Verkstjóri verður eins og undanfarin ár Sigríður Jónsdóttir.

Umsóknareyðublöð eru á heimasíðunni og einnig á skrifstofu Dalabyggðar. Sérstakar vinnureglur og viðmið um verkefni og verkfæri gilda um Vinnuskóla Dalabyggðar. Umsóknarfrestur er til og með 15. maí.

Ath. Því miður gleymdist að uppfæra ártal í fréttinni í Dalapóstinum, en á að sjálfsögðu að vera 2018.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei