Vinnustofa vegna Aðalskipulags Dalabyggðar

DalabyggðFréttir

Þar sem ekki var hægt að halda vinnustofu í tengslum við endurskoðun Aðalskipulags Dalabyggðar í október verður hún haldin í félagsheimilinu Dalabúð miðvikudaginn 10. nóvember nk. og hefst kl.17:00. Áætlað er að vinnustofan taki um tvær klukkustundir.

Fyrirkomulag vinnustofunnar verður á þann veg að áhugasömum gestum gefst færi á að skoða tillöguna þar sem greinargerð og uppdrættir verða til sýnis. Jafnframt geta gestir tekið þátt í vinnuhópum um mótun tillögunnar.

Við bjóðum alla velkomna á vinnustofuna.

Fyrir þá sem misstu af kynningu á vinnslutillögunni þann 26. október sl. er upptaka frá henni aðgengileg á Facebook-síðu Dalabyggðar með því að smella HÉR.

Þórður Már Sigfússon, skipulagsfulltrúi.

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei