Guðrúnarlaug í Sælingsdal

DalabyggðFréttir

Þessa dagana er verið að hlaða Guðrúnarlaug í Sælingsdal og mun fljótlega vera hægt að baða sig í lauginni. Það var fyrir u.þ.b. 140 árum sem skriða féll á laugina sem þá hafði sinnt hlutverki sínu frá dögum Guðrúnar Ósvífursdóttur. Uppbygging laugarinnar er í samræmi við þá stefnu, sem mótuð er í aðalskipulagi sveitarfélagsins, að efla menningartengda ferðamennsku á Laugum.
Á myndinni má sjá Guðjón Kristinsson hleðslumann að störfum en hann hefur yfirumsjón með verkinu.
  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei