Sturluhátíð 2024
Nánari upplýsingar
Nú fer að styttast í árlegan viðburð. Sturlufélagið heldur árlega Sturluhátíð laugardaginn 13. júlí nk. Hátíðin er kennd er við sagnaritarann mikla Sturlu Þórðarson, sem
Nánari upplýsingar
Nú fer að styttast í árlegan viðburð.
Sturlufélagið heldur árlega Sturluhátíð laugardaginn 13. júlí nk.
Hátíðin er kennd er við sagnaritarann mikla Sturlu Þórðarson, sem bjó að Staðarhóli í Dölum.
Hátíðin hefst við Staðarhól, Saurbæ í Dölum, með afhjúpun söguskilta sem Sturlufélagið hefur látið útbúa og gefa innsýn í sögu sagnaritarans, Staðarhóls og héraðsins.
Að því loknu förum við í sögugöngu með leiðsögn um Staðarhól.
Að lokinni þessari dagskrá á Staðarhóli verður haldið að Laugum í Sælingsdal, þar sem dagskráin heldur áfram og verða bornar fram kaffiveitingar, í boði Sturlufélagsins, að gildum og góðum íslenskum sið.
Dagskrá:
Kl. 13 – Afhjúpun söguskilta og söguganga – Staðarhóli í Saurbæ í Dölum.
Kl. 15 – Sturluhátíð – Dalahótel að Laugum í Sælingsdal.
Ræður flytja:
– Einar K. Guðfinnsson formaður Sturlufélagsins, setur hátíðina.
– Guðrún Nordal, forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.
– Sverrir Jakobsson, deildarforseti og prófessor við Háskóla Íslands.
– Óttar Guðmundsson, geðlæknir.
Tómas R. Einarsson bassaleikari ásamt Óskari Guðjónssyni gítarleikara flytja tónlist. Sömuleiðis mun Tómas, sem er uppalinn á Laugum, lesa kafla úr ný útkominni endurminningabók sinni „Gangandi bassi“.
Aðgangur að hátíðinni er ókeypis og eru allir velkomnir.
Sturlufélagið býður upp á kaffiveitingar að hætti heimamanna.
Meira
Klukkan
13. Júlí, 2024 13:00(GMT+00:00)
Staðsetning
Laugar í Sælingsdal