Dalabyggð óskar eftir tilboðum í múrviðgerðir, málun o.fl. á byggingum á Laugum.
Útboðsgögn eru seld á 3.000 kr á skrifstofu Dalabyggðar.
Tilboð verða opnuð kl. 14 miðvikudaginn 1. júní nk. á skrifstofu Dalabyggðar.
Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.