Tilnefning: Dalamaður ársins 2021

DalabyggðFréttir

Í tengslum við Jörvagleði 2021 hefur Menningarmálanefnd Dalabyggðar ákveðið að standa fyrir tilnefningu um Dalamann ársins 2021.

Hér fyrir neðan má nálgast slóð á form þar sem er að finna tvær spurningar sem þarf að svara til að atkvæðið sé tekið gilt.

Athugið að svör eru ekki rekjanleg niður á þátttakendur.

Þetta tilnefningarform verður opið til miðvikudagsins 21. apríl.

Að því loknu fara tilnefningar með rökstuðningi fyrir nefndina sem mun tilkynna um Dalamann ársins 2021 á Jörvagleðinni sem verður 24. apríl nk.

Slóð:      TILNEFNA DALAMANN ÁRSINS 2021    (<—-  smellið á textann)

– Menningarmálanefnd Dalabyggðar

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei