Á morgun 10. júní kl.15:00 verður haldinn sveitarstjórnarfundur unga fólksins í Dalabyggð.
Fundinum verður streymt á YouTube-síðunni „Dalabyggð TV“.
Á fundinum taka þátt 7 fulltrúar ungmenna úr sveitarfélaginu en þau hafa sjálf valið dagskrárliði og útbúa tillögur.
Dagskrá:
- Framhaldsskóladeild í Dalabyggð
- Íþróttamannvirki í Búðardal
- Úrbætur á skólalóð
- Umhverfi og ásýnd í Dalabyggð
Við hvetjum íbúa til að fylgjast með fundinum: Útsending frá sveitarstjórnarfundi unga fólksins.