Sorphreinsun sem áætluð var í vikunni verður því miður frestað vegna óviðráðanlegra aðstæðna.
Við bendum íbúum á að hægt er að fara með flokkað sorp á Endurvinnslustöðin í Búðardal sem er staðsett að Vesturbraut 22, 370 Búðardal og er opin:
þriðjudagar | 14 | – | 18 |
fimmtudagar | 14 | – | 18 |
laugardagar | 10 | – | 14 |
Á endurvinnslustöðinni er tekið á móti eftirfarandi flokkum úrgangs í gáma:
- Almennur blandaður (óflokkaður) úrgangur
- Endurvinnsluúrgangur, s. s. pappa, pappír og plast
- Raf‐ og rafeindatæki, s. s. kælitæki, ísskápar, rafeindatæki, sjónvörp, skjáir
- Spilliefni, s. s. olíuvörur, leysiefni, málning, rafgeymar, rafhlöður
- Timbur ‐ ómeðhöndlað / hreint
- Timbur ‐ meðhöndlað
- Málmur, brotajárn
- Steinefni, s. s. grjót, steypubrot, gler, postulín
- Hjólbarðar
- Heyrúlluplast
- Ökutæki
- Nytjahlutir
- Fata‐ og klæðaefni
Einnig eru þar lúgur fyrir plast, pappa og málm aðgengilegar allan sólarhringinn.
Beðist er velvirðingar á þessum töfum.