Síðasti skipulagði bólusetningadagur fyrir áramót verður fimmtudaginn 8. desember n.k.
Mælt er með örvunarbólusetningu á eftirfarandi hátt:
Fyrsta örvunarskammti (skammtur III)
- almennt frá 18 ára aldri þegar a.m.k. 4 mánuðir eru liðnir frá grunnbólusetningu (skammti II).
Öðrum örvunarskammti (skammtur IV)
- fyrir einstaklinga 60 ára og eldri og einstaklinga með alvarlega ónæmisbælingu, a.m.k. 4 mánuðum frá fyrsta örvunarskammti.
- fyrir starfsfólk heilbrigðisstofnanna og hjúkrunarheimila.
Aðrir 18 ára og eldri mega fá annan örvunarskammt 4 mánuðum eftir þann fyrsta ef þess er óskað eða læknir mælir með því.
ATH. að panta þarf bólusetningu vegna örvunarskammta í síma 432 1450