Covid-19 örvunarskammtur

DalabyggðFréttir

Síðasti skipulagði bólusetningadagur fyrir áramót verður fimmtudaginn 8. desember n.k.

Mælt er með örvunarbólusetningu á eftirfarandi hátt:

Fyrsta örvunarskammti (skammtur III)

  • almennt frá 18 ára aldri þegar a.m.k. 4 mánuðir eru liðnir frá grunnbólusetningu (skammti II).

Öðrum örvunarskammti (skammtur IV)

  • ​fyrir einstaklinga 60 ára og eldri og einstaklinga með alvarlega ónæmisbælingu,  a.m.k. 4 mánuðum frá fyrsta örvunarskammti.
  • fyrir starfsfólk heilbrigðisstofnanna og hjúkrunarheimila.

Aðrir 18 ára og eldri mega fá annan örvunarskammt 4 mánuðum eftir þann fyrsta ef þess er óskað eða læknir mælir með því.

ATH. að panta þarf bólusetningu vegna örvunarskammta í síma 432 1450

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei