Með nýlegri lagabreytingu var ríkisskattstjóra falið að koma fram skiptum eða slitum á þeim lögaðilum sem ber að skrá raunverulega eigendur en hafa vanrækt skráningarskyldu samkvæmt lögunum. Um er að ræða nokkuð yfir 1.100 félög, þar af nokkur sem skráð eru í Dalabyggð.
Skatturinn skorar á eigendur skráðra félaga um að skrá raunverulega eigendur félaganna. Verði það ekki gert á næstu tveimur vikum (talið frá 11. janúar 2023) mun ríkisskattstjóri taka ákvörðun um að krefjast slita eða skipta á félögunum, samkv. auglýsingu í Lögbirtingarblaðinu.
Samkvæmt upplýsingum eru sjö félög á listanum með lögheimili í Dalabyggð (póstnr. 370 og 371):
Foreldrafélag Auðarskóla
Þaulsetur sf.
Sauðfjárræktarfélagið Logi
Samband breiðfirskra kvenna
Vörubílstjórafélag Dalasýslu
Ferðamálafélag Dalas/Reykhólahr
Alþýðusamband Vesturlands
Eigendur/ábyrgðarmenn eru hvattir til að bregðast við. Leiðbeiningar má m.a. finna hér: Fyrirhuguð slit og skipti þeirra lögaðila sem ekki hafa skráð raunverulega eigendur