Photo by Gylfi Gylfason: https://www.pexels.com/photo/waving-flag-of-iceland-5833990/

Þjóðaratkvæðagreiðsla 2026 – Viðmiðunardagur kjörskrár

SafnamálFréttir

Viðmiðunardagur kjörskrár vegna þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst er miðvikudaginn 22. júlí kl. 12 á hádegi.

Viðmunardagur kjörskrár segir til um hvar kjósendur eru skráðir á kjörskrá. Ef kjósandi flytur lögheimili sitt eftir þann tíma er hann enn á kjörskrá miðað við fyrra heimilisfang. Tilkynning um nýtt lögheimili þarf að hafa borist Þjóðskrá fyrir klukkan 12 á hádegi 22. júlí.

Kjörskrá er samskonar og við alþingiskosningar og forsetakjör. Á kjörskrá eru íslenskir ríkisborgarar sem náð hafa 18 ára aldri á kjördag og eiga lögheimili á Íslandi.

Íslenskir ríkisborgarar sem hafa átt lögheimili á Íslandi hafa kosningarétt í 16 ár frá því þeir flytja af landinu. Eftir þann tíma þarf viðkomandi að sækja um að vera settur aftur á kjörskrá fyrir 1. desember ár hvert. Hafi ekki verið sótt um fyrir 1. desember 2025 getur viðkomandi ekki kosið við þjóðaratkvæðagreiðslu í lok ágúst.

Erlendir ríkisborgarar búsettir á Íslandi eiga ekki kosningarrétt við þjóðaratkvæðagreiðslu og geta því ekki kosið.

Kynningarvefur landskjörstjórnar um þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst er www.thjodaratkvaedi.is/

Upplýsingavefur landskjörstjórnar um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst er https://island.is/v/thjodaratkvaedagreidsla-2026/fyrir-kjosendur-thjodaratkvaedagreidsla

 

Yfirkjörstjórn Dalabyggðar

  • Var efni síðunnar hjálplegt?
  • Nei